Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Atburðarteljari

Ditten og datten

Best að nota þessa síðu bara...Guðný Einarsdóttir

Að eiga bloggsíðu er allt í lagi en að eiga bloggsíður og nota þær ekki er alls ekki í lagi..Nú hangir maður bara á fésinu eins og engin sé morgundagurinn,,mér fannst nú alltaf gaman að lesa bloggið hjá vinunum en nú virðist það bara heyra sögunni tilUndecided
Veit ekki hvað ég er að hanga uppi núna ætti auðvitað að vera grjótsofnuð fyrir löngu..
En nú fer ég að sofa góða nótt

Á þessa ennþá!!!!Guðný Einarsdóttir

Ég á þessa ennþá  þannig,að ég ætla nú bara að bulla smá blogg hér inn,held að ég noti hana sem geymslu síðu,það er nokkuð sniðugt hjá mér er það ekki bara:)
Ég á svo mikið af myndum og svoleiðis hér inni...
Á ekki von á því að neinn kvitti við þessa færslu svo,jamm

nýtt bloggGuðný Einarsdóttir

Er komin með nýtt blogg
www.gullaeinars.blog.is
Er að vinna í þ´vi og læra á það..
Takk fyrir
Kv
Gulla

segi þaðGuðný Einarsdóttir

Hún er nú ansi dularfull þessi bloggsíða,hún er alltaf á fleyiferð út uma allan skjáin allavega stundum,getur verið ansi piiiiiiiiiiiiirrandi ohhh  Jæja ætla ekki að blogga mikið því ég hef nú ósköp lítið að tjá mig um þannig er það nú bara sko...Það mýgrignir ég óð í fæturnar hér út á palli áðan,svona getur nú lífið verið skrítið..Ég er að fara að keyra hana múttu mína í bæin,hún þarf að útrétta svona eitthvað,ég hafði nú ætlað mér að vera heima og kannski fara á ball með the 66 en geri það bara seinna,,,,Fer til Lindu litlu að skoða á henni augnbrýrnar hahahaha....

Djööö drasl..Guðný Einarsdóttir

Sko ég er ekki búin að vera með netsamband síðan fyrir helgi,nú ég hringdi í Örnu minn viðgerðar mann(konu) og hún reyndi ýmislegt og hringdi í síman,og síminn benti á einhvern annan hvað er að ohhh,svo var bara eiginlega ekkert gert í þessu fyrr en í dag þegar ég kom heim úr æfingum þá sá ég bíl merktan míla og maður að bauka í rafmagns-kassanum hér úti,og ég lét það gáfulega út úr mér er bilað haHlæjandiþá sagði maðurinn að það væri ekkert samband á Fossöldu 1 já,já sagði ég bara og fór,en það er nokkuð ljóst að það er einhver tenging á milli fossöldu 6 og 1 jemundur minn,og ég sem hélt að talvan mín væri bara djöööö drasl nei þá var þetta bara síminn,og það var gott að nágranni minn lét tékka á þessu allavega vildu þeir ekkert fyrir mig gera,,,,,,
Þetta er búin að vera róleg og góð helgi og lítið gert,enda hafði ég nú ekki mikla orku í einhvert skrall,búin að liggja í fjandans flensu í viku,en er orðin þokkalega spræk núna...Mig langar svo að fara á aukatónleikana hjá Bjögga en!!!!!! er bara ekki alveg að tíma því þetta er svo djöööö dýrt urrrrrrrÓákveðinnlíka af því það er nú farið að stittast í jólin og ég þarf víst að kaupa eitthvað af gjöfum,er byrjuð að föndra kortin dugleg égHlæjandiNú segi ég þetta gott..Kv

heyja,heyja,hóóóóóGuðný Einarsdóttir

  Komin nóvember og ég var að heyja hohoh,nei samá grín haha ég er að reyna að vera findin en það er eitthvað mislukkað hjá mér ég hlæ ekki einu sinni af þessu sjálf ohhhh,,,
Gerðist áskrifandi að apótekinu hér á staðnum held að ég hafi farið ansi oft inn í það,það var nú bara af því að það er svo sekmmtilegt fólk að vinna þar sko ekkert öðruvísi sko..Fór á heilsugæslust,á Hvolsvelli í morgun að hitta dokksa, ég er ekkert svo mikið biluð það allavega sleppur fyrir hornHlæjandi...Ohh......
SMÁ SPEKI...
Sá sem ekki veit,og veit ekki að hann veit ekki,hann er kjáni.
Forðastu hann....
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Sá sem ekki veit,og veit að hann veit ekki,hann er barn
Kenndu honum....

Sá sem veit,og veit ekki að hann veit,hann er sofandi
Vektu hann...

Sá sem veit,og veit að hann veit,hann er vitur.
Fylgdu honum...
Hef þetta þá ekki meira að sinni..Nú er kl orðin miðnótt,og tímabært að skríða undir sæng.Góða nótt  

Komin nóvemberGuðný Einarsdóttir

Það er bara komin nóvember,og það segir manni það að það sé stutt til jóla,ohhh og alltaf hugsar maður afhverju er ég ekki búin að smá versla jólagjafir allt árið eða bara snemma í því djöööö maðurHissaSkrapp aðeins til Reykjavíkur seinnipartin á laugardaginn með honum Gogga,hann skyldi mig eftir hjá Konna,og þar lokaði mín bara augunum og hafði það gott,um kvöldið komu hinir þessir vinir hans Konna,fórum í bæin á Gaukin,sumir týndust og aðrir sátu uppi með eitthvað nenni ekki að tíunda það hér hoho...En þetta var ógurlegt fjör,svo á sunnudeginum söng Konni fyrir okkur í tíma og ótíma lagið hans Barða,og við bara FORÐUÐUM OKKUR  Haha...Svo var bara leti þegar ég kom heim,,,en öllu verra í dag,hálsbólga og bullandi hósti,andsk..... urrrr er hundfúl yfir þessu ohhhh...... Óli kom í hádeginu með nestið sitt,ég bjó til samlokur handa okkur,og auðvitað fékk karlin nýtt kaffi,svo sátum við á svölunum í bongó blíðu og drukkum kaffi og spjölluðum meðan tími gafs til....Ég sé það að ég þarf nauðsynlega að þvo gluggana að utan ég sé varla orðið út ,æææ geri það bara fyrir jólin og þríf þá að innan líka slæ þar með tvær hliðar í einum þvotti  Góður...
Jæja er að hugsa um að láta gott heita....Hitti Lindu litlu ekkert.............................

Bókin góða.Guðný Einarsdóttir

Laufin eru að falla hér við landamærin.
Þótt nágrannar mínir séu verstu villimenn og þú sért í þúsund mílna fjarlægð.
Standa tveir bikarar alltaf á borði mínu....................
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ekki ganga á undan mér,
kannski fylgi ég þér ekki.
Ekki ganga á eftir mér,
kannski fer ég ekki á undan.
Gakktu við hlið mér,
og vertu bara vinur minnHlæjandi

Fann þetta þegar ég var að taka til í dag,maður finnur stundum ýmislegt...Svo er hér smá tilvitanir um vináttu.

Guð gaf okkur ættingja:Guði sé lof að við getum valið okkur vini.....
Versta einsemd er að eiga engan tryggan vin.....

Vinur í raun eru þeir sem þú getur hringt í kl 4 að nóttu.....

Sannur vinur er sá sem gengur inn þegar allir aðrir ganga út...

Læt þetta gott heita að sinni,læt meira úr bókinu góðu síðar,gott að grípa  til hennar þegar ekkert merkilegt er til að skrifa um......Hafið það gott

Vetur konungur mætturGuðný Einarsdóttir

Rak upp stór augu þegar ég loksins vaknaði almennilegaí gær,rétt fyrir hádegi það var komin SNJÓRÓákveðinn já hvað skal skrifað hér var í heljar afmæli hjá mínum yngsta bróðir á laugardagskvöldið hann varð fertugur strákurinn hann átti afmæli í gær,þetta var mikið fjör og mikið gaman,Ómar Diðriks spilaði og söng,ásamt Benna,og var mikið dansað og djöflast á dansgólinu púffý,púff,....Hey svo þarna um hádegi þá uppgvötaði ég það að ég þurfti að nota lappirnar ohh hræðilegt og auðvitað fuku nokkur grömm jemundur minn,bíllinn minn var upp á Kanslara,því ekki gat ég farið á honum heim um nóttina eftir að vera búin að sötra bollu í nokkra tíma ónei,óneiUllandiEn ég komst þetta nú allt saman léttilega sko haha,og ohh svo var nú  byrjað á því að bursta snjó af bílnum og skafa,en Helgi kallaði á mig í kaffi þannig að ég lét bílin bara sjá um það sjálfan að ná hríminu af,fór svo á æskustöðvarnar og fékk veislumat hjá Óla og Steinunni,hitti dansfélaga minn,sem ég lenti alltaf á í hringdansi ógurlega findið haha skoðaði gjafirnar hjá stráksa heilmikið af gjöfum,,,'I morgum gekk mér illa að vakna skil bara ekki hvað ég þarf stundum að sofa,en allavega fór í vinnu,og eftir hádegi í puð hjá Diegó,og ákvað María að setja nálar í handlegginn minn því mér var svoooo illt í honum(handleggnum) allt annað líf núna.Fékk tíma hjá dekkja Bjössa eftir hádegi á morgun eftir hádegi,undir með vetrardekkin sko ætla ekki að vera spólandi meir huhhh...
SMÁ SPURNING: Hvoert segið þið geitafjöður í hattinum eða á hattinum???
Kveð að sinni...............

Svefnsófi<> stofusófiGuðný Einarsdóttir

Svefnsófi,nei ég meina stofusófi,samt sofnaði ég í honum í kvöld og mikið djöööö var það gott,en frekar slæmt núna,er eiginlega andvaka ekki gott,ekki gott  vildi sko alveg vera grjót-sofandi....Jæja þess vegna ákvað ég að blogga pínu,þó svo ég hafi lítið að segja nema  að það RIIIIIIIIGNIR OG RIIIIIIIIIIIIGNIR,og allt fýkur hér á svölunum,hrökk allavega upp við einhver andsk.....  læti áðan og dröslaðist út að bjarga einhverju drasli,ætla sko að fara að kanna hver á allt þetta dótarý sem er hér á fleygiferð á mínum svölum urrrrrrr  Jæja ég nenni ekki að nöldra meira að sinni...Bless
Síða 1 af 11

Könnun

Á ég að vera með þessar kannanir ha??????????

Bloggarar

Klukkan

Teljari